Markmið starfseminnar er að veita sáttamiðlun í ágreiningsmálum fyrir einstaklinga og fyrirtæki og sálfræðiráðgjöf við lausn á vandamálum einstaklinga.
Þjónustan: Felst í að greina vandamál og leysa þau.
Bæði einstaklingsþjónusta og fyrirtækjaþjónusta, þar sem leitast er við að leysa vandmál hjá einstaklingum eða ágreining á milli, til að mynda:
– Barns og foreldris
– Hjóna eða para
– Starfsmanna og/eða yfirmanna fyrirtækja
– Viðskiptaaðila
– Nágranna
– Foreldra í forræðisdeilum (umgengnismál)
-Vandamál innan skólastofnana svo sem einelti.